pokercasinosports

Casino Races

Casino Races (kapphlaup í Casino) bætir viðbótarlagi af spennu og samkeppni við hvern einasta leik sem þú spilar. Hvert kapphlaup í Casino færir þér fleiri tækifæri til að vinna frábær verðlaun og það sem er enn betra, það kostar ekkert að skrá sig.

Þú getur spilað Casino Races í fjölmörgum spilakössum, eða Live Casino Races í öllum Live Casino-leikjum og borðleikjum sem er í boði hjá okkur.

Hvernig virka Live Casino Races?

Þú staðfestir þátttöku og skráir þig í Casino Races hvenær sem er í gegnum Casino Races-anddyrið, eða í gegnum Casino Races-fangið (e. widget), sem birtist í leiknum þegar kapphlaup er í boði. Það kostar ekkert að skrá sig og er án innkaups- eða aðgangsgjalds.

Eftir að þú hefur skráð þig nærðu þér í vinningsveðmál í einhverjum af gildu leikjunum og þá færðu stig í stöðutöfluna. Stig eru gefin í hlutfallinu 10 stig á hvern nettó $0,01 sem vinnst. Allir Live Casino-leikir og borðleikir gilda með í stigasöfnuninni.

Stig reiknast í gjaldmiðlinum sem verðlaunapotturinn er í. Nettóvinningum er breytt í gjaldmiðil verðlaunapottsins á nýjasta skiptigenginu og svo námundaðir í næstu heilu tölu

Hvernig virkar Casino Races?

Þú staðfestir þátttöku og skráir þig í Casino Races hvenær sem er í gegnum Casino Races-anddyrið, eða í gegnum Casino Races-fangið (e. widget), sem birtist í leiknum þegar kapphlaup er í boði. Það kostar ekkert að skrá sig og er án innkaups- eða aðgangsgjalds.

Eftir að þú hefur skráð þig nærðu þér í vinningsveðmál í einhverjum af gildu leikjunum og þá færðu stig í stöðutöfluna. Athugaðu að í Casino Races sem leyfa spilun yfir marga leiki máttu aðeins spila einn leik í einu, en mátt hvenær sem er skipta á milli gildra leikja.

Vegna þess að stigin byggjast á margfeldi vinningsins þíns yfir bestu handa- eða snúningaumferðina þína þá þarftu ekki að vera einhver hákarl til að vinna – svo framarlega sem lágmarksboðið í Casino Races er uppfyllt getur spilari sem leggur undir nokkur „cent“ á hvern snúning unnið einhvern sem leggur undir hámarkið.

Þegar Casino Races lýkur fá spilarar sem eru á toppi stöðutöflunnar strax verðlaun

Hvernig eru stigin reiknuð?

Stigakerfið byggist á heildarfjölda af uppsöfnuðum margföldurum (e. total accumulated multipliers) yfir hvert kapphlaup (e. race) eða umferð af snúningum/höndum. Stig á hvern snúning/hönd reiknast sem margfaldarar – upphæðinni sem vinnst í hverjum snúningi er deilt með upphæðinni sem var lögð undir og svo margfölduð með 100. Heildarskor, eða hæsta uppsafnaða skor úr umferð, verður lagt við lokastöðuna í stöðutöflunni.

Tiltekin kapphlaup eru með hámarksfjölda af umferðum. Eftir að spilari hefur náð þessu takmarki lýkur kappinu hans.

Hvert kapphlaup er einstakt, svo því eru reglur, lágmarksupphæðir til að leggja undir, hámarkssnúningar, greidd sæti í stöðutöflu og verðlaun, allt háð breytingum frá kapphlaupi til kapphlaups, svo passaðu að þú skoðir fangið í leiknum (e. in-game widget) til að sjá hvaða tilteknu reglur gilda fyrir kapphlaupið þitt.

Athugaðu að stig eru veitt m.v. hverja leikumferð (e. game round) og ættu ekki að vera notuð til þess að fylgjast með heildareyðslunni þinni.

Hversu oft er Casino Races í gangi?

Casino Races er í boði allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar og hvert kapphlaup í Casino Races getur staðið yfir í mismunandi langan tíma.

Hvernig er ákvarðað hver sigrar?

Sigurvegarar í kappi í Casino (e. Casino Race) ákvarðast út frá stöðu spilarans í stöðutöflunni þegar kappinu lýkur. Ef það er jafntefli, er spilaranum sem hefur náð fleiri snúningum á meðan Casino Races stendur yfir úthlutuð hærri staðan. Ef þetta nær ekki að rjúfa jafnteflið, verður spilaranum sem skráði sig fyrst í þetta tiltekna Casino-kapphlaup úthlutuð hærri staðan.

Hvað ef truflun verður á leiknum hjá mér?

Ef truflun verður á leiknum hjá þér á meðan Casino Races eru í gangi munu endurgerðar (e. restored) hendur/snúningar ekki teljast með til stiga fyrir það tiltekna kapphlaup. Hins vegar munu vinningar úr þeim leik verða greiddir eins og venjulega eftir að búið er að leysa úr leiknum sem lenti í trufluninni.

Í Live Casino Races teljast ógild veðmál án neinnar beinnar niðurstöðu (líka þau sem er síðar breytt) ekki með til stiga í Live Casino Races.

Smelltu hér til að skoða almenna kynningarskilmála.