pokercasinosports

Reglur í Live Baccarat

Baccarat (kotra) er frægur fyrir að vera leikurinn sem njósnarar og ofurskúrkar kjósa að spila og að sjálfsögðu VIP-spilarar spilahallanna. Nú getur þú fengið VIP upplifun alvöru spilahallanna án þess að standa upp frá tölvunni þinni, þökk sé Live Baccarat í PokerStars Casino. Reyndu þig í keppni við raunverulega gjafara, náðu skori upp á níu og upplifðu hvernig er að líða eins og alvöru stórbokki - smóking er ekki áskilinn.

Leikspilun

Það er einfalt að læra leikinn baccarat Um leið og lagt hefur verið undir eru gefnar tvær tveggja-spila hendur - ein til Bankarans (gjafarinn, eða „húsið“) og ein til spilarans. Markmið leiksins er að ná að skora eins nálægt níu og hægt er með þremur spilum að hámarki. Gildi spilanna er eins og hér segir:

SpilStigaskor
Ás 1
2-9 2-9, eins og stendur á þeim
10/gosi/drottning/kóngur 0

Ef hönd endar á að skora yfir 9 er aðeins seinni talan í skorinu tekin með í reikninginn. Til dæmis er hönd sem er 7+5+2 samtals 14 og myndi því skora 4.

Spilarar geta veðjað á eina af þremur útkomum leiksins: Spilari vinnur (greitt út á líkunum 1:1, jafn peningur), Bankari vinnur (greitt út á líkunum 1:1, að frádreginni 5% þóknun. T.d. veðmál upp á 100 gæfi þá til baka 195 nettó), eða jafntefli (greitt út á líkunum 8:1).

Reglur um dregin spil

Baccarat-hönd spilast til loka eftir fastmótuðum reglum.

Fyrir hönd spilarans eru þær eftirfarandi:

  • Ef spilari (eða Bankari) fær gefið skorið 8 eða 9 í fyrstu tveimur spilunum, kallað náttúruleg hönd, vinna þeir (eða gera jafntefli ef hendurnar eru skora jafnhátt) og ný gjöf hefst. Náttúruleg 9 vinnur náttúrulega 8.
  • Ef fyrstu tvö spilin í hönd spilarans skora á bilinu 0-5 skal spilari draga þriðja spilið.
  • Ef fyrstu tvö spil spilarans skora 6-7 geta þeir ekki dregið þriðja spilið og Bankarinn dregur ef hann er með skor á bilinu 0-5.

Bankarinn dregur líka spil eftir föstum reglum:

Tveggja-spila skor BankaraBankari dregur þriðja spil...
0-2 Sjálfkrafa
3 Ef spilari dregur eitthvað þriðja spil (nema það sé 8)
4 Ef spilari dregur þriðja spil á bilinu 2-7
5 Ef spilari dregur þriðja spil á bilinu 4-7
6 Ef spilari dregur þriðja spil á bilinu 6-7
7-9 Dregur ekki

Bankarinn mun alltaf draga samkvæmt þessum reglum, jafnvel þó að hann myndi vinna með því að standa á tveimur spilum.

Hliðarboð (e. Side Bets)

Tegund boðsÚtborgunLýsing
Player Pair 11 á móti 1 Hliðarboð sem vinnur ef fyrstu tvö spilin sem spilarinn fær gefin mynda par
Banker Pair 11 á móti 1 Hliðarboð sem vinnur ef fyrstu tvö spilin sem bankarinn fær gefin mynda par

* Athugið að aðeins er hægt að velja annað þessara hliðarboða í einu í hverjum leik.

Reglur um dregin spil spilarans og Bankarans eru framkvæmdar sjálfvirkt, þannig að ekkert þarf að hugsa út í það.