pokercasinosports

Allt um bónusa

Svona færðu Free Spins-bónus

Passaðu að kíkja á kynningasíðuna okkar til að kynna þér kasínótilboðin okkar nánar.

Spilaðu ókeypis í gildum spilakössum fyrir raunverulega peninga

Eftir að þú hefur spilað alla frísnúningana þína eru vinningarnir greiddir út sem annað hvort Casino Instant-bónus eða sem raunpeningar, allt eftir skilmálum bónussins.

Ef vinningar eru í formi Casino Instant-bónuss er hægt að skipta þeim fjármunum í raunpeninga með því að þéna tiltekinn fjölda endurheimtarpunkta í Casino-leikjum, eða með því að leggja undir tiltekinn fjölda veðmála/boða.

Ef vinningarnir þínir úr Free Spins-bónusnum eru veittir sem peningar eftir að snúningunum er lokið er hægt að taka peninginn út.

Allir gullpottavinningar (e. jackpots) sem verða til í frísnúningum (e. Free Spins) verða alltaf greiddir sem peningar.

Án takmarkana eða veðmáls-/úttektarskilyrðinga.

Nota frísnúninga

Hvernig virka Free Spins-bónusar?

Frísnúningar eru veittir spilurum í tilteknum aðstæðum, eins og sem verðlaun fyrir að ljúka áskorun, eða sem hluti af kynningu.

Frísnúningar eru oft notaðir í tilteknum gildum leikjum, þar sem vinningum er skipt í Casino Instant-bónus eða raunverulega peninga eftir að öllum ókeypis snúningum er lokið.

Þegar þú „samþykkir“ Free Spins-bónus færðu úthlutuðum fyrir fram ákvörðuðum tíma og þú verður að nota hann í gildum leikjum áður en hann rennur út. Ef þú velur að „hafna“ Free Spins-bónusnum verður bónusinn ekki í boði og þú þarft ekki að gera neitt fleira.

Hvernig virka frísnúningar?

Spila, hlé, halda áfram

Endurheimtaraðferðin fyrir Free Spins-bónus er sýnd þegar bónusinn er boðinn og upplýsingarnar verða aðgengilegar undir „My Stars“-valinu til skoðunar, þar sem spilarar geta sýslað með bónusana sína með því að velja „Free Spins“. Þú finnur líka nánari upplýsingar þar, eins og um gilda leiki, lokadagsetningar, framgang bónussins, endurheimtarleið og möguleika á að „gera hlé“ á bónusnum.

Gerirðu hlé á núverandi bónusnum þínum er hann lagður til hliðar og leyfir þér þannig að nota annan Free Spins-bónus sem er aðgengilegur á reikningnum þínum. Þú getur valið að „halda áfram“ með bónus sem hefur verið í hléi hvenær sem er þar til hann rennur út, en athugaðu að það að gera hlé á bónus hefur ekki áhrif á gildistímann eða hvenær hann rennur út. Free Spins-bónusa er hægt að nota í marga gilda leiki í einu en þú getur þó aðeins opnað eina spilalotu (e. session) með frísnúningunum í einu.

Þú getur spilað aðra leiki á sama tíma og þú ert að spilalotu með frísnúningunum í tölvu- og vefbiðlurunum (þar sem þeir eru í boði); leikirnir opnast í mismunandi gluggum. Í snjalltækjum geturðu bara spilað einn leik í einu.

Margir Free Spins-bónusar

Aðeins er hægt að nota einn Free Spins-bónus í einu í gildum leik. Ef þú átt fleiri opna Free Spins-bónusa í einu til að nota í tilteknum leik geturðu stýrt forgangsröð bónusanna undir „Free Spins“-hlutanum í „My Stars“-valinu.

Eftir að virki Free Spins-bónusinn er nýttur að fullu, settur í hlé, eða hann útrunninn, mun næsti Free Spins-bónus sjálfkrafa verða aðgengilegur. Ef þú vilt ekki nota Free Spins-bónus sem þú hefur samþykkt þá seturðu Free Spins-bónusinn einfaldlega á pásu og lætur hann renna út, en hann verður þá fjarlægður af reikningnum þínum eftir það.

Spilað fyrir frísnúningana

Eftir að Free Spins-bónus er tilbúinn til notkunar í gildum leik (þ.e. hann hefur verið samþykktur), birtist Free Spins-táknið á leikglugganum hans. Smelltu á Free Spins-táknið til að opna Free Spins-stillinguna; sé smellt á „Play“ í stillingunni opnast Free Spins-spilalota í sérstökum glugga.

Reitirnir „Line Bet“ og „Total Bet“ sýna þá textann „FREE“ til að gefa til kynna að þetta sé spilalota með frísnúningum. Eftir að þú hefur notað alla ókeypis snúningana verða allir vinningar sem tengjast þeim greiddir inn á reikninginn þinn sem annað hvort Casino Instant-bónus eða peningur, allt eftir skilmálum bónussins.

Gildistími

Allir Free Spins-bónusar eru með lokadagsetningu (e. expiry date) Ef allir ókeypis snúningarnir hafa ekki verið notaðir fyrir þessa lokadagsetningu rennur Free Spins-bónusinn þinn út og verður fjarlægður af reikningnum þínum og þú færð ekki neina útistandandi vinninga sem hafa fengist með þessum ókeypis snúningum.